Presentation is loading. Please wait.

Presentation is loading. Please wait.

Að vanda til námsmats Samræða við kennara í Tækniskólanum 28. maí 2009.

Similar presentations


Presentation on theme: "Að vanda til námsmats Samræða við kennara í Tækniskólanum 28. maí 2009."— Presentation transcript:

1 Að vanda til námsmats Samræða við kennara í Tækniskólanum 28. maí 2009

2 Að vanda til námsmats: Álitamál og leiðir 1.Að vekja til umhugsunar um ýmis álitamál sem tengjast námsmati 2.Að gefa yfirlit um þróun námsmats hér á landi um þessar mundir og dæmi um ólíkar leiðir sem kennarar eru að fara í viðleitni til að bæta það Áhugi – gróska – gerjun – þróun

3 Erum við sammála um hvað námsmat er? Samofið allri kennslu. Kennari fylgist með nemanda í dagsins önn. Allt mat sem ekki er formgert með e-m hætti. Allt skipulegt, formlegt, opinbert námsmat, s.s. próf, kannanir, skipulegar athuganir, skráning á árangri, formlegur vitnisburður. Óformlegt námsmat – Formlegt námsmat Námsmat er öll öflun upplýsinga um nám nemenda og miðlun þeirra til nemenda eða annarra

4 Mikilvægar spurningar? Hvernig er námsmati yfirleitt háttað í framhaldsskólum? En í Tækniskólanum? Eru námsmatsaðferðirnar að skila góðum árangri? Eru þetta bestu aðferðir sem völ er á? Hvað þarf helst að bæta eða þróa í námsmati og hvaða leiðir koma helst til greina við að bæta námsmat? Á hverju á að byggja þróun námsmats? RannsóknirNámskráReynsla

5 Ákvæði Aðalnámskrár 2004 Tilgangur námsmats er að kanna að hve miklu leyti nemendur hafa tileinkað sér markmið aðalnámskrár (skólanámskrár) í viðkomandi grein. Námsmat getur farið fram með mismunandi hætti eftir ákvörðun skóla [leturbr. IS]. Umfang þess skal þó að jafnaði vera í samræmi við umfang kennslu í viðkomandi grein. Kennarar bera ábyrgð á námsmati og þeir meta úrlausnir nemenda.

6 Vandi Vandi að ræða námsmat í framhaldsskólum: Lítið sem ekkert er vitað (örugg vitneskja) um hvernig námsmati er háttað í framhaldsskólum hér á landi! Raunar er sáralítið vitað um kennsluhætti í framhaldsskólanum yfirleitt!!! Þó þetta: – Athugun Rósu M. Grétarsdóttur og Sigurbjargar Einarsdóttur á námsmati í þremur framhaldsskólum (MH, MA og FG) – Rannsókn Rósu á viðhorfum íslenskukennara til námsmats – Rannsókn Ragnheiðar Hermannsdóttur á viðhorfum nemenda til námsmats

7 Alþjóðleg umræða Bandaríkin: Stöðluð próf eða óhefðbundið námsmat (alternative assessment, sjá grein IS)sjá grein IS England: Stöðluð próf eða leiðsagnarmat, formative assessment, sjá grein Black og Wiliam, 1998)grein Black og Wiliam, 1998 Hér á landi Námsmatsaðferðir sem eru að ryðja sér til rúms: einstaklingsmiðað námsmat, leiðsagnarmat, námsmöppur (ganga undir ýmsum nöfnum). Bakgrunnur: Gróska, gerjun, deilur

8 Í brennidepli nú: Leiðsagnarmat Kjarninn í leiðsagnarmati er að nemandinn fái (stöðuga) endurgjöf um nám sitt ásamt ábendingum um það hvernig hann geti bætt sig (ráðgjöf, leiðsögn) Haft er fyrir satt að fjöldi rannsókna sýni þýðingu vandaðs leiðsagnarmats til að bæta námsárangur Nemendur sem standa höllum fæti virðast njóta sérstaklega góðs af leiðsagnarmati Sjálfsmat og jafningjamat eru mikilvægir þættir í leiðsagnarmati en meginatriði er að nemendur skilji til hvers er af þeim ætlast (skilji markmiðin) (Black og Wiliam 1998: Inside the Black Box)

9 Kennslufræði leiðsagnarmats Útskýra markmið fyrir nemendum Beita markvissum spurningum Leiðbeinandi endurgjöf (umsagnir) Virkja nemendur (sjálfsmat, jafningjamat) Jafningjakennsla (Wiliam 2007: Changing Classroom Practice )

10 Álitamál álitamálanna: - Hvaða hlutverki gegna einkunnir? - Er hugsanlegt að einkunnir hafi neikvæð áhrif á nám? Rannsóknir Ruth Butler o.fl. frá 1986 og 1988 – Endurgjöf í formi einkunna – Endurgjöf í formi umsagna – Endurgjöf í formi einkunna og umsagna – Engin endurgjöf

11 Hlutverk einkunna Endurgjöf Upplýsing Hvatning Niðurstaða Dómur Grundvöllur fyrir flokkun nemenda (náms- og starfsval) Vottun

12 Hvers vegna vefst einkunnagjöf svona fyrir okkur mörgum? Knappt form – samantekt! Álitamál? Óljósir mælikvarðar? Við hvað á að miða? Einkunnir geta verið afar afdrifaríkar!

13 Ólíkir skalar 1, 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8, 9, 10 1-6, 1–8 A, B, C, D, F (hvar er E-ið?) Dönsku kerfin, sjá hérsjá hér Ágætt, gott, sæmilegt, ábótavant, ófullnægjandi Snjallt, gott, hæft, naumt, bágt (Helgi Hálfdanarson) Lokið – ólokið Hvaða aðferð er heppilegust?

14

15 Ágúst 2006 © Þóra Björk Jónsdóttir 15 Ég fékk C fyrir víravirkið mitt !? Má ég koma með spurningu? Hvernig getur maður fengið C fyrir víravirki? Er það ekki bara tíminn einn sem getur skorið úr um gildi listaverks? ? Er víravirkið mitt dæmt sem víra- virki? Eða var ég metin eftir hæfileikum mínum? Þá er ég dæmd á grundvelli þess sem ég ræð engu um! Ef ég var dæmd fyrir hversu vel ég lagði mig fram. Þá er matið ósanngjarnt því að ég reyndi mitt besta!

16 Ágúst 2006 © Þóra Björk Jónsdóttir 16 Var ég metin eftir því hvað ég hafði lært um viðfangsefnið? Ættir þú kennari þá ekki að fá C eins og ég... Eða var ég kannski metin samkvæmt gæðum efnisins sem ég bjó verkið úr? Á að dæma mig eftir gæðum járnherðatrésins sem hreinsunin notar fyrir fötin okkar? Láti maður í sér heyra er meira tillit tekið til manns. Er það ekki á ábyrgð foreldra minna? Ættu þeir ekki að fá sinn skerf af C-inu mínu? fyrir frammistöðu þína við að miðla þekkingu til mín? Er það ekki einnig óréttlátt? Hjólið sem ískrar fær alla smurninguna!

17 Þegar einkunn er notuð skal... Varast að láta hana ná til óskyldra þátta (námsárangurs, vinnubragða, hegðunar) Einkunn á að mæla námsárangur – lýsa því að hvaða marki nemandinn hefur náð námsmarkmiðum Útskýra fyrir nemendum hvað einkunnirnar merkja Miller, Linn og Gronlund 2009: 378-379

18 Einkunnakvarði Sjá http://starfsfolk.khi.is/ingvar/namsmat/matsban ki/matskvardi.htm http://starfsfolk.khi.is/ingvar/namsmat/matsban ki/matskvardi.htm

19 Endurgjöf „Endurgjöf að loknu námsmati stendur fyrst undir nafni þegar kennari ræðir eða ritar um frammistöðu nemanda; hrósar því sem vel er gert eða athyglisvert, bendir á bresti og sem flestar færar leiðir til úrbóta.“ (Rowntree, 1983, 29).

20 Góð regla um ritun umsagna: Gott... Gæti verið betra... Af þessu leiðir...

21 Meginvandi við skriflegar umsagnir *Tímafrekar * Vandasamar í framsetningu * Auðvelt að mistúlka þær * Erfitt að gæta samkvæmni og samræmis * Erfitt að henda reiðu á einstökum atriðum * Kerfisbundin skráning erfið

22 Eru þetta vitnisburðarform framtíðarinnar? Gátlistar (e. checklists) Matskvarðar (e. rating scales) Marklistar (viðmiðunartöflur, sóknarkvarðar, e. scoring rubric) Dæmi (frá Súsönnu Margréti Gestsdóttur, FÁ og HÍ)

23

24 Annað álitamál: Staða skriflegra lokaprófa Vaxandi efasemdir um stöðu og vægi skriflegra lokaprófa: – Prófa aðeins hluta markmiða – Margir nemendur læra fyrst og fremst fyrir prófin – Neikvæð afturvirkni prófa – Próf eru skólaverkefni sem eiga sér fáar hliðstæður í lífinu sjálfu (námsmat ætti að endurspegla mat í lífinu sjálfu)

25 Óhefðbundin próf Próf þar sem nemendur mega nota hjálpargögn „Svindlpróf“, glósupróf, önnur hjálpargögn... öll gögn Heimapróf Prófverkefni gefin upp með fyrirvara Munnleg smápróf, dæmidæmi Nemendur fá að gera endurteknar tilraunir við sama próf / sömu próf: Prófavikur (Salaskóli) Einstaklingsmiðuð próf (Salaskóli, Norðlingaskóli) Samvinnupróf (Salaskóli)

26 … ákvað að prófa í fyrsta sinn samvinnupróf/könnun … Prófað var úr tveimur málfræðiatriðum sem þau voru að læra í þýsku og ég lét þau draga miða með hverjum þau lentu (tveir saman). Þau undirbjuggu sig svo heima. Í prófinu hvísluðust þau á og komu sér saman um svar og hvert par skilaði einu blaði (hinn aðilinn fékk svo ljósrit af útlausninni seinna). Efnið sem verið var að prófa hentaði sérlega vel til þessa verkefnis - einkum beyging lýsingarorða þar sem velta þarf fyrir sér kyni orða, falli og endingum veikrar og sterkrar beygingar. Útkoman var mjög góð og nemendur ánægðir. Þeir hafa spurt hvort þeir megi ekki gera svona aftur. Einn nemandi sagði við samstarfskonu mína að maður lærði svo vel fyrir þessa könnun því maður vildi ekki valda samstarfsaðila sínum vonbrigðum! Kv. Ásta Ásta Emilsdóttir, Kvennaskólanum

27 Ég prófaði svindlpróf fyrir stuttu. Það gekk mjög vel og voru stór hópur nemenda sem undirbjó sig samviskusamlega fyrir prófið. Þeir sem ekki undirbjuggu sig fyrir prófið gekk yfirleitt illa. Þeir nemendur sem stóðu sig vel töluðu um að ég hefði platað þau. Þau sögðu að þau hefðu þurft að lesa heilmikið þegar þau voru að búa til svindlmiðann. Skemmtilegt að prófa eitthvað nýtt í skyndiprófum kv. þsig Þórður Sigurðsson, FÁ

28 Fjölbreytt námsmat Mat á frammistöðu Námsmöppur / sýnismöppur („Portfolio“) Greining og mat á verkefnum / úrlausnum Dagbækur, leiðarbækur Sjálfstæð verkefni Sjálfsmat nemenda Jafningjamat Umræður – viðtöl Viðhorfakannanir Próf og kannanir Óhefðbundin próf Sýningar, námshátíðir, upp- skeruhátíðir,

29 Námsmöppur Ekki ein aðferð heldur margar! Gömul aðferð – í nýjum búningi – nýju samhengi!

30 Portfolio - Processfolio Námsmappa Sýnismappa Sýnishornamappa Verkefnamappa Verkmappa Ferilmappa Nemendamappa Gengur undir ýmsum heitum: Heimilda- safn um nám – feril – eða afrakstur

31 Megingerðir Safnmappa (documentation) Ferilmappa Sýnismappa (showcase) Rafræn mappa (electronic portfolio, webfolio) – Vefsíður – Bloggsíður – Geisladiskar

32 Sýnismappa (Portfolio / Processfolio) Minnispunktar kennarans Ritgerðir Umsagnir félaga Ljósmyndir Myndir Riss Uppköst Glósur Skýrslur Dagbækur Úrlausnir Ljósrit Tölvuútprentanir Sýnishorn Markvisst val Sýnir þróun í tíma - framfarir Þátttaka nemenda (Sjálfsmat) Safnið á að vera skapandi viðfangsefni Minningar Ljóð Hugleiðingar

33 Sjálfsmat nemenda Þýðing – Virkja nemendur til ábyrgðar á námi sínu – Mikilvæg þjálfun – Nemendur skilja betur tilgang námsins – Kennarar fá mikilvægar upplýsingar um nám og kennslu (þeir heyra raddir nemenda) – Rannsóknir sýna að sjálfsmat getur bætt námsárangur

34 Sjálfsmat – þátttaka nemenda; aðferðir Nemendasamtöl Umræðufundir, sbr. matsfundir Leiðarbækur, lestrardagbækur Gátlistar, matsblöð, kannanir, dæmi …

35 Kannanir Heildstæðar kannanir Einstök námskeið eða áfangar, dæmidæmi Lotur, kennslustundir, – Dæmi – mat á einni kennslustund Dæmi – Dæmi – ígrundun í lok dags (Lundarskóli) Dæmi – Dæmi – mat í vikulok Dæmi Leiðsagnarkannanir, dæmi (lífsleikni, MS) Áhugasviðskannanir, dæmidæmi

36 Matsfundir 10–20 þátttakendur Orðið gengur tvo til þrjá hringi: – Jákvæð atriði: Hvað eruð þið ánægð með? – Kvörtunarhringur: Hvað má betur fara? Nemendur nefna eitt / tvö / þrjú atriði eftir því hvað ákveðið hefur verið Öll atriði eru skráð Engar umræður

37 Jafningjamat Virkjar nemendur til þátttöku og ábyrgðar Eflir skilning nemenda á markmiðum námsins Bætir endurgjöfina (hún verður fyllri – fleiri sjónarhorn) Nemendur taka ábendingum nemenda oft betur en ábendingum kennara Nemendur leggja sig oft meira fram ef þeir vita að félagar þeirra taka þátt í mati Veitir mikilvæga þjálfun (tjáning, samstarf, jafningjastuðningur) – nemendur læra að gagnrýna uppbyggilega

38 Dæmi um jafningjamat (IS) Við jafningjamatið styðjist þið við eftifarandi spurningar: Er efnið í möppunni fjölbreytt? Er efnið áhugavekjandi? Leggur höfundur mikið af mörkum sjálfur? Gætir hugmyndaflugs? Virðist höfundur hafa lært mikið á námskeiðinu? Gæti annar aðili nýtt sér efnið með auðveldum hætti? Hversu góður er frágangur (málfar)? Er heimilda getið? Skrifið stutta umsögn og gefið einkunn. Notið einkunnaviðmiðanir Kennaraháskólans við einkunnagjöfina, sjá á þessari slóð: http://starfsfolk.khi.is/ingvar/namsmat/matsbanki/matskvardi.htm Jafningjamatið sendið þið umsjónarmanni námskeiðsins (ingvar@khi.is). http://starfsfolk.khi.is/ingvar/namsmat/matsbanki/matskvardi.htm

39 Meira um marklista (sóknarkvarða) matskvarða, gátlista Á ensku: Scoring Rubrics, Rating Scales, Checklists: – Tæki sem nota má bæði við mat á frammistöðu (flutning, verkefnaskil) og afrakstri (skýrslum, ritgerðum, myndverkum, úrlausnum) – Henta í öllum námsgreinum, á öllum skólastigum – Auka líkur á nákvæmni, óhlutdrægni – Nemendur fá glöggar upplýsingar um til hvers er ætlast

40 Hverjir nota marklista, matskvarða og gátlista? Kennarar Nemendur Sjálfsmat Jafningjamat Aðrir (foreldrar, samkennarar, gestir, stjórnendur) Sjá sýnishorn á þessari slóð: http://starfsfolk.khi.is/ingvar/namsmat/matsbanki/Welcome.htm

41 Dæmi um gátlista og matskvarða – Hrafnagilskóli (virkni)virkni – Ingunnarskóli (list- og verkgreinar)list- og verkgreinar – Norðlingaskóli, mat á námi í smiðjummat á námi í smiðjum Matsatriðabanki Baldurs Sigurðssonar http://starfsfolk.khi.is/balsi/leidbeiningar.htm http://starfsfolk.khi.is/balsi/leidbeiningar.htm

42 Gagnlegir tenglar Kennsluaðferðavefurinn Að vanda til námsmats – Heimasíða námskeiðs Peel – námsmat Best Practices http://www.teachers.tv/ - (Assessment) http://www.teachers.tv/(Assessment)


Download ppt "Að vanda til námsmats Samræða við kennara í Tækniskólanum 28. maí 2009."

Similar presentations


Ads by Google