Presentation is loading. Please wait.

Presentation is loading. Please wait.

Ingvar Sigurgeirsson - janúar 2007 Námsmat: Hugtök og álitamál.

Similar presentations


Presentation on theme: "Ingvar Sigurgeirsson - janúar 2007 Námsmat: Hugtök og álitamál."— Presentation transcript:

1 Ingvar Sigurgeirsson - janúar 2007 Námsmat: Hugtök og álitamál

2 Dagskrá  Inngangur:  Álitamál um námsmat  Námsmatshugtök  Hin alþjóðlega umræða  Leiðsagnarmat  Átök um próf sem námsmatsaðferð  Einstaklingsmiðað námsmat (eða hvað við eigum nú að kalla það?)  Námsmatsaðferðir

3 Vandi Vandi að ræða námsmat Ólík viðhorf Lítið sem ekkert er vitað (örugg vitneskja) um hvernig námsmati er háttað í hér á landi! Hugtakaruglingur?! Dæmi: Símat, mat á virkni nemenda, könnun eða próf

4 Námsmatshugtakið Samofið allri kennslu. Kennari fylgist með nemanda í dagsins önn. Allt mat sem ekki er formgert með e-m hætti. Allt skipulegt, formlegt, opinbert námsmat, s.s. próf, kannanir, skipulegar athuganir, skráning á árangri, formlegur vitnisburður. Óformlegt námsmat – formlegt námsmat Námsmat er öll öflun upplýsinga um nám nemenda og miðlun þeirra til annarra

5 Skilgreining Linn og Miller Assessment is a general term that includes the full range of proceedures used to gain information about student learning (observations, ratings of performances or projects, paper-and-pencil tests). And the formation of value judgements concerning learning progress (Linn og Miller, 2005, bls. 26).

6 Leiðum hugann að þessu: Hver eru helstu námsmatsverkin? Hversu stór hluti af starfi kennara er námsmat? Og þessu: Hversu margir kennarar hafa ánægju af námsmati? (Hversu margir hafa gerst kennarar af áhuga á námsmati?)

7 Eru þetta mikilvægar spurningar? Hvernig er námsmati háttað? Eru þær matsaðferðirnar sem nú eru einkum notaðar að skila góðum árangri? Eru þetta bestu aðferðir sem völ er á? Er vel staðið að námsmati? Hvað þarf helst að bæta eða þróa? Hvaða leiðir koma helst til greina við að bæta námsmat? Hvernig ber að skilja ákvæði aðalnámskrár? Á hvaða námsmatsaðferðir ber að leggja áherslu samkvæmt námskránni? Á hverju á að byggja þróun námsmats?

8 Er þetta á rökum reist? Áhugi á námsmati er mikið að vaxa Skilningur á mikilvægi námsmats er að aukast Þróun námsmats verður einn af hornsteinum skólaþróunar á næstu misserum

9 Hin alþjóðlega námsmatsumræða: Bandaríkin: Prófin / óhefðbundið námsmat (gerjun og deilur – sbr. 1. kaflinn í Linn og Miller) England: Prófin / leiðsagnarmat (þróun) Bakgrunnur: Gróska í kennslu- og námsmatsfræðum

10 Efst á baugi... Ótal heiti:  Authentic Assessment: „Rauntengt“ námsmat  Alternative Assessment: Óhefðbundið námsmat  Performance-based Assessment eða Performance Assessment: Frammistöðumat  Portfolio Assessment: Námsmöppur, verkmöppur, sýnismöppur  Differentiated Asssessment: Einstaklingsmiðað námsmat, aðlagað mat  Multidimensional eða Multiple Assessment: Margþætt námsmat  Natural Assessment: Eðlilegt námsmat (?)  Holistic Assessment: Heildstætt námsmat

11 Yfirlit um þróun óhefðbundins námsmats IS: Námsmat byggt á traustum heimildum, sjá á þessari slóð: http://starfsfolk.khi.is/ingvar/namsmat/thkrist.ht m

12 Byrjum hér á landi Gróska í námsmati í kringum námskrána 1976/77 Á níunda og tíunda áratug síðustu aldar liggja námsmatsmál mikið í láginni (námsmat = vandræðamál) Áhugi hefur farið (hratt!) vaxandi á undanförnum árum  Námskráin 1999  Erlendir straumar  Styrkir úr þróunarsjóðum  Einstaklingsmiðunarstefnan

13 Margir skólar hér á landi eru og hafa verið að vinna skipulega að þróun námsmats: Vesturbæjarskóli Laugalækjarskóli Ingunnarskóli og Norðlingaskóli Ölduselsskóli Salaskóli Hrafnagilsskóli Borgaskóli

14 Út á hvað ganga þessi verkefni? „Naflaskoðun“ - kortlagning Heildaráætlanir – samræming Aukna fjölbreytni Einstaklingsmiðað námsmat Frammistöðumat Námsmöppur – ferilmöppur - verkmöppur Leiðabækur Nemendaviðtöl Gátlistar, matslistar Sjálfsmat, jafningjamat Þróun matsviðmiðana (e. scoring rubrics, marklistar, sóknarkvarðar)

15 Í raun er lítið vitað um námsmat í grunnskólum hér á landi! Þrjár rannsóknir: –Rannsókn Ingibjargar Ernu Pálsdóttur á námsmatsaðferðum (lokið) –Rannsókn Rúnars Sigþórssonar á áhrifum samræmdra prófa (ólokið) –Rannsókn Ingvars Sigurgeirssonar, Jóhönnu Karlsdóttur og Meyvants Þórólfssonar á námsmatsaðferðum í grunnskólum (ólokið)

16 Rannsókn Ingibjargar Ernu Pálsdóttur Spurningalisti var sendur í 23 grunnskóla skólaárið 2003–2004 þar sem spurt var um fyrirkomulag námsmats (65% heimtur) Námsmat byggist annars vegar á skriflegum prófum (einkum á mið- og unglingastigi) og hins vegar á frammistöðu nemenda Þessar aðferðir reyndust lítið notaðar (en áhugi á þeim mikill): Þátttaka nemenda Umræður við nemendur Sjálfsmat og jafningjamat Námsmöppur (ferilmöppur, portfolio) Erna Ingibjörg Pálsdóttir (2005). Námsmat í höndum kennara. Meistaraprófsritgerð lögð fram til fullnaðar M.Ed.-gráðu í menntunarfræðum við Háskólann á Akureyri með áherslu á stjórnun.

17 Ákvæði Aðalnámskrár 1999 Megintilgangur námsmats … að afla upplýsinga sem hjálpa nemendum við námið, örva þá og hvetja til að leggja sig enn betur fram … Námsmat fer ekki eingöngu fram í lok námstímans heldur er það einn af föstum þáttum skólastarfs, órjúfanlegt frá námi og kennslu … Þar sem markmiðin eru margvísleg … er augljóst að matsaðferðir verða að vera fjölbreytilegar. Mikilvægt er að meta bæði verklega og bóklega þætti og prófa ýmist skriflega, verklega eða munnlega eftir því sem við á. Námsmat þarf … að fara fram jafnt og þétt á námstímanum. Kennarar þurfa að hjálpa nemendum til raunhæfs sjálfsmats …

18 Tilgangur námsmats!? Námshvatning – aðhald Upplýsingar til nemenda, foreldra, annarra Vísbendingar til kennara Greina og meta nám eða kennslu Gæðaeftirlit Gera tilgang námsins ljósari Val og flokkun á fólki

19 Önnur sjónarmið um tilgang námsmats (hin dulda námskrá) Búa nemendur undir lífsbaráttuna Halda aga Umbuna eða refsa? Styrkja vald kennarans? Ógnun Eyða tíma!?

20 Þegar grannt er skoðað: Hvers vegna vefst námsmat svo mikið fyrir okkur ? ... er flókið  það er afdrifaríkt  fyrir þróun sjálfsmyndar  fyrir starfsval og starfsframa ... reynir mjög á sanngirni og réttlætiskennd ... tengist ólíkum viðhorfum ... tengist fordómum okkar ... manneskjan er ótraust mælitæki! Þegar grannt er skoðað: Hvers vegna vefst námsmat svo mikið fyrir okkur ?

21 Nokkur mikilvæg námsmatshugtök Greinandi mat: Til að greina námserfiðleika (Diagnostic Assessment) Stöðumat: Hvar stendur nemandinn? (Placement Assessment) Leiðsagnarmat: Til að bæta námið (Formative Assessment) Heildarmat (yfirlitsmat): Til að meta námsárangur þegar kennslu er lokið (Summative Evaluation) Símat: Stöðugt námsmat á námstíma (Continuous Assessment / Ongoing Assessment)

22 Leiðsagnarmat (lykilhugtak í einstaklingsmiðuðu námi) Kjarninn í leiðsagnarmati er að nemandinn fái (stöðuga) endurgjöf um nám sitt ásamt ábendingum um það hvernig hann geti bætt sig (ráðgjöf) Haft er fyrir satt að fjöldi rannsókna sýni fram á þýðingu vandaðs leiðsagnarmats til að bæta námsárangur Nemendur sem standa höllum fæti virðast njóta sérstaklega góðs af leiðsagnarmati Sjálfsmat er mikilvægur þáttur í leiðsagnarmati en meginatriði er að nemendur skilji til hvers er af þeim ætlast (skilja markmiðin) (Black og Wiliam 1998): Inside the Black Box

23 Endurgjöf „Endurgjöf að loknu námsmati stendur fyrst undir nafni þegar kennari ræðir eða ritar um frammistöðu nemanda; hrósar því sem vel er gert eða athyglisvert, bendir á bresti og sem flestar færar leiðir til úrbóta.“ (Rowntree, 1983, 29).

24 Endurgjöf í leiðsagnarmati Markmiðin Staðan Leiðir

25 Að hvaða atriðum þarf ég að einbeita mér við upprifjun? Hvar er ég sterkur og hverjir eru veikleikar mínir? Hvernig stend ég mig? Hvernig veit ég hvort vinna mín sé góð? Hvað fær mig virkilega til að hugsa? Hver eru markmiðin mín? Hvað get ég munað og hvernig fæ ég betur skilið? Nota ég bestu námsaðferðir fyrir mig? Hvað þarf ég að gera til að bæta mig? Hvernig fer ég að því að ná árangri og taka framförum? (Þóra Björk Jónsdóttir 2006)

26 Álitamál álitamálanna! Hvaða hlutkverki gegna próf í námsmati? Hvaða hlutverki eiga þau að gegna?

27 Dæmi um mikilvæga þætti sem erfitt er að meta með skriflegum kunnáttuprófum Vinnuvenjur Umræður, upplestur, tilraunir, tjáning, vinnubrögð, leikni í samskiptum Leikni Umgengni, ástundun, iðni, frumkvæði, áræðni, úthald Félagsleg viðhorf Tillitssemi, umhyggja, löngun til að stuðla að góðum samskiptum Viðhorf til þekkingar Áhugi Starfsgleði Sjálfsmynd Forvitni, opinn og spurull hugur Áhugi Ánægja – gleði – lífsfylling Virðing, geta tekið gagnrýni, tilfinningalegt jafnvægi

28 Meginsjónarmið prófandstæðinga Próf mæla aðeins lítinn hluta námsmarkmiða Próf er einangrað skólafyrirbæri sem á sér fáar hliðstæður annars staðar í samfélaginu Ef meginhlutverk skólans er að undirbúa nemendur undir líf og starf í lýðræðis- þjóðfélagi ætti námsmat að líkjast þeim matsaðferðum sem almennt eru notaðar í lífi og starfi Námsmat á að vera samofið öðru skólastarfi falla að því með eðlilegum hætti

29 Hvað er próf? 1. Verkefni sem ætlað er að kanna þekkingu nemenda eða leikni 2. Lagt fyrir á tilteknum tíma, leyst innan tímamarka eftir ákveðnum reglum 3. Nemendur fá sömu (sambærileg) verkefni 4. Nemendur búa sig undir prófið án þess að vita nákvæmlega um hvað verður spurt 5. Verkefnið er leyst í viðurvist eftirlitsmanns sem aðeins má veita takmarkaða eða jafnvel enga aðstoð 6.Nemendur mega ekki hjálpast að 7. Yfirleitt má ekki styðjast við heimildir eða gögn

30 Aðrar gerðir prófa (Alternative Tests) ☺„Allir hjálpast að “- prófið ☺ Tíu-prófið ☺ Nemendum leyft að hafa með sér gögn / heimildir ☺ Prófverkefni / spurningar gefið upp með fyrirvara ☺ Prófavikur (Salaskólaútfærslan) ☺ Samvinnupróf

31 Námsmatsaðferðir: Hvaða orð á að nota á íslensku? Stöðugt, alhliða...? Heildstætt...? Fjölþætt... margþætt...? Símat? Einstaklingsmiðað...?

32 Einstaklingsmiðað námsmat Gengið er út frá getu og hæfni hvers nemanda Matið nær til allra flokka markmiða Matið er stöðugt allan námstímann og fléttast með eðlilegum hætti inn í námið Áhersla á uppbyggjandi endurgjöf (leiðsögn) Námsmatsverkefnin sjálf eiga að hafa kennslufræðilegt gildi Matið nær jafnt til aðferða og afurða Byggt er á margvíslegum gögnum og sjónarhornum Áhersla á virka þátttöku nemenda, sjálfsmat, jafningjamat

33 Helstu námsmatsaðferðir Skipulegar athuganir Mat á frammistöðu Námsmöppur / sýnismöppur („Portfolio“) Greining og mat á verkefnum / úrlausnum Dagbækur, leiðarbækur Sjálfstæð verkefni Sjálfsmat nemenda Jafningjamat Umræður – viðtöl Viðhorfakannanir Próf og kannanir Námshátíðir, upp- skeruhátíðir (Celebration of Learning, Learning Celebrations)

34 Heimildir um námsmatsaðferðir Kennsluaðferðavefurin Kennsluaðferðavefurinn

35 Hvað svo Lestur á Measurement and Assessment in Teaching –Kennslubréf og leiðsögn kennara –Nemendur skipta með sér efni bókarinnar og leiðbeina hver öðrum »Efninu má skipta í þrjú meginsvið Hlutverk námsmats, markmið, hugtök Prófgerð Aðrar námsmatsaðferðir


Download ppt "Ingvar Sigurgeirsson - janúar 2007 Námsmat: Hugtök og álitamál."

Similar presentations


Ads by Google