Presentation is loading. Please wait.

Presentation is loading. Please wait.

Námsmat í deiglu Spjallað við kennara í FSn 16. febrúar 2010 Ingvar Sigurgeirsson Menntavísindasviði Háskóla Íslands.

Similar presentations


Presentation on theme: "Námsmat í deiglu Spjallað við kennara í FSn 16. febrúar 2010 Ingvar Sigurgeirsson Menntavísindasviði Háskóla Íslands."— Presentation transcript:

1 Námsmat í deiglu Spjallað við kennara í FSn 16. febrúar 2010 Ingvar Sigurgeirsson Menntavísindasviði Háskóla Íslands

2 Námsmat í deiglu 1.Leiðsagnarmat 2.Álitamál um námsmat 3.Áhugaverð dæmi Áhugi – gróska – gerjun – þróun Skiljum við námsmatshugtakið með sama hætti?

3 Mikilvægar spurningar? Hvernig er námsmati yfirleitt háttað í framhaldsskólum? En í FSn? Eru námsmatsaðferðirnar að skila góðum árangri? Eru þetta bestu aðferðir sem völ er á? Hvað þarf helst að bæta eða þróa í námsmati og hvaða leiðir koma helst til greina við að bæta námsmat? Á hverju á að byggja þróun námsmats? RannsóknirNámskráReynsla

4 Ákvæði Aðalnámskrár 2004 Tilgangur námsmats er að kanna að hve miklu leyti nemendur hafa tileinkað sér markmið aðalnámskrár (skólanámskrár) í viðkomandi grein. Námsmat getur farið fram með mismunandi hætti eftir ákvörðun skóla [leturbr. IS]. Umfang þess skal þó að jafnaði vera í samræmi við umfang kennslu í viðkomandi grein. Kennarar bera ábyrgð á námsmati og þeir meta úrlausnir nemenda.

5 Alþjóðleg umræða Bandaríkin: Stöðluð próf eða óhefðbundið námsmat (alternative assessment, sjá grein IS)sjá grein IS England: Stöðluð próf eða leiðsagnarmat (formative assessment, sjá grein Black og Wiliam, 1998)grein Black og Wiliam, 1998 Sterkur rannsóknargrunnur! Hér á landi Aðferðir sem eru að ryðja sér til rúms: Einstaklingsmiðað námsmat, leiðsagnarmat, sjálfsmat, jafningjamat, námsmöppur (ganga undir ýmsum nöfnum). Dýrmæt reynsla er að verða til! Bakgrunnur: Gróska, gerjun, deilur

6 Kjarninn í leiðsagnarmati Nemandinn fær (stöðuga) endurgjöf um nám sitt ásamt ábendingum um það hvernig hann geti bætt sig (ráðgjöf, leiðsögn) Haft er fyrir satt að fjöldi rannsókna sýni þýðingu vandaðs leiðsagnarmats til að bæta námsárangur Nemendur sem standa höllum fæti virðast njóta sérstaklega góðs af leiðsagnarmati Sjálfsmat og jafningjamat eru mikilvægir þættir í leiðsagnarmati en meginatriði er að nemendur skilji til hvers er af þeim ætlast (skilji markmiðin) (Black og Wiliam 1998: Inside the Black Box)

7 Kennslufræði leiðsagnarmats Útskýra markmið fyrir nemendum Beita markvissum spurningum Leiðbeinandi endurgjöf (umsagnir) Virkja nemendur (sjálfsmat, jafningjamat) Jafningjakennsla (Wiliam 2007: Changing Classroom Practice )

8 Sjö leiðir 1.Skýra námsmarkmiðin og gera þau sýnileg og skiljanleg öllum. 2.Nota dæmi eða sýnishorn af góðum og slökum verkefnum. 3.Gefa lýsandi endurgjöf reglulega. 4.Kenna nemendum að meta eigið nám og að setja sér markmið. Hvernig næ ég markmiðunum? 5.Beina kennslunni að einum þætti í einu. 6.Kenna nemendum að rifja skipulega upp. 7.Hvetja nemendur til ígrundunar, til að hafa skipulag á því sem þeir læra og deila því með öðrum. (Hrafnhildur Hallvarðsdóttir og Sólrún Guðjónsdóttir, 2009)Hrafnhildur Hallvarðsdóttir og Sólrún Guðjónsdóttir, 2009

9 Tvö umhugsunarverð álitamál Hvaða þýðingu hafa einkunnir? Hvaða hlutverki eiga próf að gegna?

10 Hvaða hlutverki gegna einkunnir? - Rannsóknir Ruth Butler o.fl. frá 1986 og 1988 – Endurgjöf í formi einkunna – Endurgjöf í formi umsagna – Endurgjöf í formi einkunna og umsagna – Engin endurgjöf Hvaða leið skilaði nemendum bestum árangri?

11 Hvers vegna vefst einkunnagjöf svona fyrir okkur mörgum? Knappt form – takmörkuð upplýsing (hvað þýðir einkunnin 7,0)? Álitamál? Óljósir mælikvarðar? Við hvað á að miða? Einkunnir geta verið afar afdrifaríkar! – Til umhugsunar: Matskvarði KHÍMatskvarði KHÍ

12 Ólíkir skalar 1, 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8, 9, 10 1-6, 1–8 A, B, C, D, F (hvar er E-ið?) A, Á, B, D, E, Ð (Baldur Sigurðsson) Dönsku kerfin, sjá hérsjá hér Ágætt, gott, sæmilegt, ábótavant, ófullnægjandi Snjallt, gott, hæft, naumt, bágt (Helgi Hálfdanarson) Mjög gott, í lagi, ófullnægjandi Lokið – ólokið Hvaða aðferð er heppilegust?

13 Vörður – viðmið við endurgjöf Mjög gottVinnubrögð góð, öllum verkefnum skilað. Þátttaka í umræðum og virkni í kennslustundum er mjög góð. Markmiðum áfangans er náð. Í lagiVinnubrögð ágæt, verkefnaskil í meðallagi. Þátttaka í umræðum og virkni í kennslustundum í meðallagi. Um helmingi markmiða áfangns er náð. ÓfullnægjandiVinnubrögð ófullnægjandi. Óvirkur þátttakandi í umræðum og virkni í kennslustundum er lítil sem engin. Uppfyllir ekki markmið áfangans. Menntaskóli Borgarfjarðar, sjá nánar hérsjá nánar hér

14 Meginvandi við skriflegar umsagnir Tímafrekar Vandasamar í framsetningu Auðvelt að mistúlka þær Erfitt að gæta samkvæmni og samræmis Erfitt að henda reiðu á einstökum atriðum Kerfisbundin skráning erfið

15 Eru þetta vitnisburðarform framtíðarinnar? – Ingunnarskóli (list- og verkgreinar)list- og verkgreinar – Norðlingaskóli (mat á námi í smiðjum)mat á námi í smiðjum Matsatriðabanki Baldurs Sigurðssonar http://starfsfolk.khi.is/balsi/leidbeiningar.htm http://starfsfolk.khi.is/balsi/leidbeiningar.htm

16 Annað álitamál: Staða skriflegra lokaprófa Vaxandi efasemdir um stöðu og vægi skriflegra lokaprófa: – Prófa aðeins hluta markmiða – Margir nemendur læra fyrst og fremst fyrir prófin – Neikvæð afturvirkni prófa – Próf eru skólaverkefni sem eiga sér fáar hliðstæður í lífinu sjálfu (námsmat ætti að endurspegla mat í lífinu sjálfu)

17 Óhefðbundin próf Próf þar sem nemendur mega nota hjálpargögn „Svindlpróf“, glósupróf, önnur hjálpargögn... öll gögn Heimapróf Prófverkefni gefin upp með fyrirvara Munnleg próf Nemendur fá að gera endurteknar tilraunir við sama próf / sömu próf Samvinnu- og hóppróf

18 … ákvað að prófa í fyrsta sinn samvinnupróf/könnun … Prófað var úr tveimur málfræðiatriðum sem þau voru að læra í þýsku og ég lét þau draga miða með hverjum þau lentu (tveir saman). Þau undirbjuggu sig svo heima. Í prófinu hvísluðust þau á og komu sér saman um svar og hvert par skilaði einu blaði (hinn aðilinn fékk svo ljósrit af útlausninni seinna). Efnið sem verið var að prófa hentaði sérlega vel til þessa verkefnis - einkum beyging lýsingarorða þar sem velta þarf fyrir sér kyni orða, falli og endingum veikrar og sterkrar beygingar. Útkoman var mjög góð og nemendur ánægðir. Þeir hafa spurt hvort þeir megi ekki gera svona aftur. Einn nemandi sagði við samstarfskonu mína að maður lærði svo vel fyrir þessa könnun því maður vildi ekki valda samstarfsaðila sínum vonbrigðum! Kv. Ásta Ásta Emilsdóttir, Kvennaskólanum

19 Ég prófaði svindlpróf fyrir stuttu. Það gekk mjög vel og voru stór hópur nemenda sem undirbjó sig samviskusamlega fyrir prófið. Þeir sem ekki undirbjuggu sig fyrir prófið gekk yfirleitt illa. Þeir nemendur sem stóðu sig vel töluðu um að ég hefði platað þau. Þau sögðu að þau hefðu þurft að lesa heilmikið þegar þau voru að búa til svindlmiðann. Skemmtilegt að prófa eitthvað nýtt í skyndiprófum kv. þsig Þórður Sigurðsson, FÁ

20 Fjölbreytt námsmat Mat á frammistöðu Námsmöppur / sýnismöppur („Portfolio“) Greining og mat á verkefnum / úrlausnum Dagbækur, leiðarbækur Sjálfstæð verkefni Sjálfsmat nemenda Jafningjamat Umræður – viðtöl Viðhorfakannanir Próf og kannanir Óhefðbundin próf Sýningar, námshátíðir, upp- skeruhátíðir,

21 Leiðarbækur – dagbækur Ensk heiti: Reflective diary Learning diary Learning protocol Learning log Learning journal Blog Tvö dæmi um reynslu kennara af notkun leiðarbóka: FSn: Sólrún Guðjónsdóttir FÁ: Þórður Sigurðsson

22 Sjálfsmat – þátttaka nemenda; aðferðir Nemendasamtöl Umræðufundir, sbr. matsfundir Leiðarbækur, lestrardagbækur Gátlistar, matsblöð, kannanir, dæmi …

23 Kannanir Heildstæðar kannanir Einstök námskeið eða áfangar, dæmidæmi Leiðsagnarkannanir, dæmi (lífsleikni, MS)

24 Matsfundir 10–20 þátttakendur Orðið gengur tvo til þrjá hringi: – Jákvæð atriði: Hvað eruð þið ánægð með? – Kvörtunarhringur: Hvað má betur fara? Nemendur nefna eitt / tvö / þrjú atriði eftir því hvað ákveðið hefur verið Öll atriði eru skráð Engar umræður

25 Gagnlegir tenglar Kennsluaðferðavefurinn Að vanda til námsmats – Heimasíða námskeiðs Peel – námsmat Best Practices http://www.teachers.tv/ - (Assessment) http://www.teachers.tv/(Assessment)


Download ppt "Námsmat í deiglu Spjallað við kennara í FSn 16. febrúar 2010 Ingvar Sigurgeirsson Menntavísindasviði Háskóla Íslands."

Similar presentations


Ads by Google