Download presentation
Presentation is loading. Please wait.
1
Efnisheimurinn Inntak og áherslur
Hafþór Guðjónsson 2/2/2019 Efnisheimurinn Inntak og áherslur Hafþór Guðjónsson Efnisheimurinn. Kynning
2
Víkka sjóndeildar- hring nemenda
Athuganir Pælingar Víkka sjóndeildar- hring nemenda Nám er að breytast …… að vitsmunir barnanna þroskist á náminu, athygli glæðist, ímyndunarafl auðgist, skilningur skerpist, andlegur sjóndeildarhringur víkki (Magnús Helgason, 1910)
3
Ég hef leitast við að búa til kennslubók sem hjálpar nemendum að læra til skilnings.
?
4
Hvað gerist þegar við lesum?
Maturana, H.R. & Varela, F.J. (1987). The Tree of Knowledge: The Biological Roots of Human Understanding. Boston, MA: Sambala.
5
Að lesa námsbók Námsbók Reynsla Forþekking á efninu Áhugi á efninu
Viðhorf til náms og þekkingar Almennur lesskilningur Námsbók
6
Hversdagslegt fyrirbæri
Hafþór Guðjónsson 2/2/2019 Nálgun: Hversdagslegt fyrirbæri Nú skildi Anna hvað góð efnafræðikennsla er vandasöm. Það er ekki nóg að börn lesi námsbókina. Orð geta ekki komið í staðinn fyrir veruleikann. Texti um kertaloga er ekki það sama og kertalogi. Hins vegar getur texti um kertaloga orðið áhugaverður þegar maður fær tækifæri að skoða kertaloga og gera athuganir á honum. Þá vakna spurningar og maður fer ósjálfrátt að leita svara við þeim. Nemandinn Textinn Efnisheimurinn. Kynning
7
Texti námsbókar Athugun: Hvað er lykt?
Kafli 2. Upphaf: Athugun: Hvað er lykt? Fáðu lánað ilmvatn eða rakspíra. Skrúfaðu tappann af og láttu glasið standa opið á borði fyrir framan þig. Eftir nokkra stund ættir þú að finna greinilega lykt. Hvernig gerist þetta? Hvernig finnur maður lykt? Hvað er lykt? Hugleiddu þessar spurningar og settu hugsanir þínar á blað (í vinnubók). Notaðu gjarnan teikningar til að útskýra hugmyndir þínar. Texti námsbókar
8
Er hægt að þjappa lofti saman?
Athugun Er hægt að þjappa lofti saman? Fáðu þér plastsprautu. Dragðu andrúmsloft inn í hana. Hinkraðu nú við augnablik og settu fram tilgátu um hve mikið þú getir þjappað loftinu saman. Skrifaðu hana hjá þér. Haltu fingri þéttingsfast fyrir opið á sprautunni og ýttu stimplinum inn á við eins langt þú getur en gættu þess þó að skemma ekki sprautuna. Lýstu athugun þinni og niðurstöðum í vinnubókinni. Stóðst tilgáta þín? ? Texti námsbókar
9
Texti námsbókar: Mynd 2.4 Þegar gasi er þjappað saman fá kúlurnar minna rými og rekast því oftar á innra borð sprautunnar, þar með talið stimplinn. Sá sem ýtir stimplinum inn finnur þá fyrir vaxandi þrýstingi frá innilokaða gasinu. Víkjum nú að athugun þinni með plastsprautuna. Væntanlega komstu að þeirri niðurstöðu að það væri tiltölulega auðvelt að þjappa loftinu saman. Þessi niðurstaða kemur heim við þá hugmynd Daltons að andrúmsloft sé í raun ósýnilegar kúlur á stanslausri ferð um það rými sem þeim stendur til boða.
10
Jói dregur loft inn í plastsprautu og lokar henni síðan með gúmmítappa eins og myndin sýnir. Ekkert loft kemst nú inn í eða út úr sprautunni. Fjarlægðin frá sprautubotninum að bullunni er 10 cm (sjá mynd). Jói ýtir nú bullunni eins langt inn og hann getur. Hvað gerist? MS Sví A Bullunni er ekki hægt að ýta inn. 30 42 B Bullunni er hægt að ýta inn nokkra millimetra. 39 33 C Bullunni er hægt að ýta inn fáeina (2 – 4) sentimetra. 20 15 D Bullunni er hægt a ýta inn allmarga (5 – 9) sentimetra 9 4 E Bullunni er hægt að ýta alveg í botn. 2 ?
Similar presentations
© 2024 SlidePlayer.com Inc.
All rights reserved.