Presentation is loading. Please wait.

Presentation is loading. Please wait.

Einstaklingsmiðað námsmat

Similar presentations


Presentation on theme: "Einstaklingsmiðað námsmat"— Presentation transcript:

1 Einstaklingsmiðað námsmat
Námsmatsferli og námsmatsaðferðir

2 Þróa mark lista til að nota við námsmat
Markmið Móta námsmatsstefnu skólanna Skipuleggja og þróa einstaklingsmiðað námsmat sem byggir á fjölbreyttum aðferðum Námsmappa Matssamtal Sjálfsmat Jafningjamat Frammistöðumat Þróa mark lista til að nota við námsmat Þetta er sett fram sem markmið næstu 3 ára Ég kem til með að ræða aðeins um þessar aðferðir sem notaðar eru við námsmat Kennarar skólanna vita heilmikið um þetta, þurfa smá upprifjun og svo tíma til að vinna að því að koma á fjölbreyttu námsmati Einnig þarf samhliða að móta stefnu skólanna betur. Ingunnarskóli er kominn áleiðis ef marka má heimasíðuna. Þar er getið um frammistöðumarkmið, marklista og Verkmöppur sem ég kalla hér námsmöppur. Ágúst 2006 ©Þóra Björk Jónsdóttir

3 Móta námsmatsstefnu Stefna er grundvallarþáttur í öllu skólastarfi
Stefnumótun er hluti af ferli og unnin á mörgum stigum Námsmatsstefna er tengd skólastefnu Námsmat og annað mat gefur til kynna stöðu gagnvart stefnu Ágúst 2006 ©Þóra Björk Jónsdóttir

4 Stefna á ólíkum sviðum Íslands- Reykjavíkur- Skóla- Bekkjar- hóps-
Skólastefna Reykjavíkur Aðalnámskrá, lög um grunnskóla Stefna skólanna Bekkjar- hóps- Áherslur og markmið hópa Einstaklings- Einstaklings- markmið Ágúst 2006 ©Þóra Björk Jónsdóttir

5 Verkefni Hugsið um hvernig þið nýtið námsmat í ykkar kennslu/hvernig námsmati þið hafið tekið þátt í sem nemendur, skráið niður nokkur atriði Ræðið við sessunaut  Skráið nokkur af þeim atriðum sem fram koma í umræðum  Þetta er: “hugsa, (skrá), ræða, deila” aðferðin ;-) Ágúst 2006 ©Þóra Björk Jónsdóttir

6 Leiðsagnarmat Leiðsagnarmat er það ferli að afla upplýsinga um hvar nemandi er staddur í námi sínu og túlka þær. Leiðsagnarmat nýtist nemendum og kennurum þeirra til leiðsagnar um hvert þarf að stefna (setja sér námsmarkmið) og hvernig best sé að ná þangað. Research-based principles to guide classroom practice, Assessment Reform Group 2002 Ágúst 2006 ©Þóra Björk Jónsdóttir

7 Lykilatriði sem stuðla að því að námsmat efli nám
Svörun Nemendur fá viðeigandi svörun – nemendur vita að hverju þeir stefna, hver séu næstu skref og hvernig eigi að taka þau Þátttaka Nemendur taka virkan þátt í eigin námi – setja sér markmið og viðmið um árangur Kennsluaðlögun Kennsla er löguð að niðurstöðum námsmats – ígrundun kennara og sýn á að allir geta náð auknum árangri Áhugi og sjálfsöryggi-vitund Viðurkennt og vitað er að námsmat hefur djúpstæð áhrif á áhuga og sjálfsálit nemenda, og að hvorutveggja hefur afgerandi áhrif á nám Sjálfsmat og námsvitund Nemendur þurfa að geta metið eigin getu og skilið hvernig á að eflast og ná árangri – ígrundun nemenda Assessment reform group, 1999 Black og Wiliam tóku saman rannsóknarniðurstöður frá 1988 til 1997 og fundu þetta út. Ágúst 2006 ©Þóra Björk Jónsdóttir

8 Námsmatsferli Hlutverk kennara
Skilgreina meginmarkmið námsins Hvað á nemandinn að læra Ákveða áfangamarkmið Hvernig á að skipuleggja námið, námseiningar Umorða í nemendavæn markmið Ég er að læra að nota stóran staf og punkta í málsgreinum Ég get flett upp á orði í orðabók og notað það við verkefnavinnu (þrm. ísl.10.b.lestur) Ég veit hvað moska er og hver eru tákn, hátíðir og siðir islams (þrm. Kf.s.t..5.b.) Ég get samið sögu um dæmi eins og (þrm. Stæ. 3. þrep, aðferðir-stæ og tungumál) Hanna viðeigandi námsmat Hvað þarf nemandinn að sýna til að hafa numið Viðmið um árangur Nota matið með nemendum til að varða leiðina að markmiðum Rick Stiggins 2004 Ágúst 2006 ©Þóra Björk Jónsdóttir

9 Meginatriði sem huga þarf að
Nemendavæn markmið frá upphafi Sýnidæmi um hvað er góð vinna, að hverju er verið að stefna Stöðug svörun á framfarir Kenna sjálfsmat og að setja sér markmið Kenna íhugun/ígrundun til að fylgjast með eigin námi Rick Stiggins 2004 Ágúst 2006 ©Þóra Björk Jónsdóttir

10 Hvernig stend ég mig? Hvað get ég munað og hvernig fæ ég betur skilið?
Nota ég bestu námsaðferðir fyrir mig? Hvað þarf ég að gera til að bæta mig? Hvar er ég sterkur og hverjir eru veikleikar mínir? Hvernig veit ég hvort vinna mín sé góð? Hver eru markmiðin mín? Að hvaða atriðum þarf ég að einbeita mér við upprifjun? Hvað fær mig virkilega til að hugsa? Hvernig fer ég að því að ná árangri og taka framförum? Ágúst 2006 ©Þóra Björk Jónsdóttir

11 ? Ég fékk C fyrir víravirkið mitt !? Má ég koma með spurningu?
Ef ég var dæmd fyrir hversu vel ég lagði mig fram. Er víravirkið mitt dæmt sem víra-virki? Eða var ég metin eftir hæfileikum mínum? ? Hvernig getur maður fengið C fyrir víravirki? Þá er ég dæmd á grundvelli þess sem ég ræð engu um! Þá er matið ósanngjarnt því að ég reyndi mitt besta! Er það ekki bara tíminn einn sem getur skorið úr um gildi listaverks? Ágúst 2006 ©Þóra Björk Jónsdóttir

12 Eða var ég kannski metin samkvæmt gæðum efnisins sem ég bjó verkið úr?
Var ég metin eftir því hvað ég hafði lært um viðfangsefnið? Ættir þú kennari þá ekki að fá C eins og ég... Eða var ég kannski metin samkvæmt gæðum efnisins sem ég bjó verkið úr? Á að dæma mig eftir gæðum járnherðatrésins sem hreinsunin notar fyrir fötin okkar? Láti maður í sér heyra er meira tillit tekið til manns. Hjólið sem ískrar fær alla smurninguna! fyrir frammistöðu þína við að miðla þekkingu til mín? Er það ekki einnig óréttlátt? Er það ekki á ábyrgð foreldra minna? Ættu þeir ekki að fá sinn skerf af C-inu mínu? Ágúst 2006 ©Þóra Björk Jónsdóttir

13 Námsmatsaðferðir við leiðsagnarmat
Námsmappa, matssamtal, sjálfsmat, jafningjamat, frammistöðumat og listar

14 Námsmappa Safn vinnu nemanda sem valin er með ákveðin markmið í huga
Nemandi og kennari vinna saman að því að setja markmið með möppunni Mat eða ígrundun verður að fylgja verkunum Mappa getur nýst í námsmati og sem grunnur að matssamtali nemenda, kennara og helst foreldra einnig Ágúst 2006 ©Þóra Björk Jónsdóttir

15 Saga nemandans Mappa á að segja sögu nemandans. Við það að safna, velja, skipuleggja meta og ígrunda tekur einstaklingur virkan þátt í að búa til sögu sína sem námsmaður. Innihald möppunnar gefur til kynna hvað nemandinn kann og getur. Þar á að vera hægt að fá upplýsingar um áhugasvið nemandans og kunnáttu og færni sem ekki tengist endilega skólastarfi. Ágúst 2006 ©Þóra Björk Jónsdóttir

16 Mappa þarf að hafa: Markmið nemandans
Lista yfir það sem mappan á að innihalda Ígrundun nemanda með hverju verki Eyðublað eða annað fyrir foreldra og kennara til að tjá sig um möppuna og einstök verk hennar Saskatchewan Professiolan Development Unit Ágúst 2006 ©Þóra Björk Jónsdóttir

17 Hvers vegna námsmappa? Breytt hugsun um nám og kennslu kallar á breyttar aðferðir við mat Áhersla á margbreytileika nemenda og fjölbreytta færni sem ekki er hægt að fá fram með hefðbundnum prófum Gefur möguleika á þátttöku nemenda í námi og mati, eignarhald á námi sínu Gefur upplýsingar um nám nemanda yfir ákveðið tímabil Er undirstaða matssamtals Ágúst 2006 ©Þóra Björk Jónsdóttir

18 Margs konar möppur Möppur geta haft mismunandi tilgang
Safnmappa – meðan á vinnu stendur Sýnimappa – valin verkefni Ferilmappa – sýnir ferli í námi “passportfolio” – tengist ákveðnu viðfangsefni svo sem Evrópska tungumálamappan ... Ágúst 2006 ©Þóra Björk Jónsdóttir

19 Safn vinnu nemanda sem valin er með ákveðin markmið í huga
Nemandi og kennari vinna saman að því að setja markmið með möppunni Mat eða ígrundun verður að fylgja verkunum Mappa getur nýst í námsmati og sem grunnur að matssamtali nemenda, kennara og helst foreldra einnig Olga Dysthe Ágúst 2006 ©Þóra Björk Jónsdóttir

20 Nemandi með möppuna sína
Ágúst 2006 ©Þóra Björk Jónsdóttir

21 Kassi, bók, taska eða vefsíða, diskur, lykill eða ?...
Ágúst 2006 ©Þóra Björk Jónsdóttir

22 Matssamtal Nemandi kynnir nám sitt fyrir foreldrum á fundi nemenda, kennara og foreldra. Nemandinn fer með aðalhlutverkið. Hann undirbýr sig fyrir fundinn og stýrir honum með því að sýna verk sín. Námsmappa gegnir oft mikilvægu hlutverki í samtalinu. Nemandinn ræðir um styrkleika sína og ef til vill hvar hann þarf að bæta sig. Það að meta og greina eigin verk er talið leiða til aukinnar ábyrgðar á námi. Ágúst 2006 ©Þóra Björk Jónsdóttir

23 Matssamtal Hagur nemenda
Nemandinn er í brennnidepli Eflir ábyrgð og sjálfræði í námi Lærir að meta eigin framgang Skuldbinding gagnvart skólastarfi og námi eykst Eflir samskipti foreldra og barna þeirra Eflir samskiptahæfni og gagnrýna hugsun Setur ábyrgðina á nemandann og foreldra Ágúst 2006 ©Þóra Björk Jónsdóttir

24 Matssamtal Hagur foreldra
Eykur upplýsingar sem foreldrar fá Kynnir námsvenjur og áhugasvið barnsins Gefur tækifæri til að hjálpa við að setja markmið Stuðlar að virkri þátttöku í námi barna sinna Veitir góða innsýn í nám og framfarir barnsins Ágúst 2006 ©Þóra Björk Jónsdóttir

25 Matssamtal Hagur kennara
Minna álag á kennara í foreldraviðtali Jákvæðari andrúmsloft Setur ábyrgðina á nemandann og foreldra Eflir þátttöku foreldra Ágúst 2006 ©Þóra Björk Jónsdóttir

26 Möppur og matssamtal Sænsk mynd – sjá dreifildi um efni hennar
Möppur – ein leið til að sjá nám sitt Ágúst 2006 ©Þóra Björk Jónsdóttir

27 Sjálfsmat og jafningjamat
Nemandi metur á gagnrýninn hátt eigin verk með hliðsjón af markmiðum og viðmiðum um árangur Getur farið fram meðan verkefni er unnið eða við lok áfanga Getur einnig verið tengt jafningjamati Curriculum corporation Ágúst 2006 ©Þóra Björk Jónsdóttir

28 Sjálfsmat getur verið að...
Bera verk sín saman við vel unnin verk Svara spurningum kennara sem laða fram ígrundun Halda leiðabók Nota matslista Nota myndræna kortlagningu við að skipuleggja vinnu sína Leiða matssamtal Curriculum corporation Ágúst 2006 ©Þóra Björk Jónsdóttir

29 Hvers vegna sjálfsmat? Nemandi verður ábyrgur fyrir námi sínu
gerir sér grein fyrir næstu skrefum í náminu fær betra sjálfstraust og verður jákvæðari, ég get í stað ég get ekki er virkur þátttakandi í námi sínu, ekki bara þiggjandi kennslu Verður sjálfstæðari og áhugasamari AAIA North East Region Ágúst 2006 ©Þóra Björk Jónsdóttir

30 Hvers vegna jafningjamat/félagamat?
Ein ástæða þessa að jafningjamat er eins gagnlegt og raun ber vitni er að nemendur gagnrýna og taka gagnrýni á verk sín frekar við þær aðstæður en við hefðbundið samtal nemanda og kennara. Annar kostur er að nemendur nota sitt venjulega talmál sín á milli frekar en eitthvert „skóla”mál Black o.fl. 2003 Ágúst 2006 ©Þóra Björk Jónsdóttir

31 Lykilatriði varðandi sjálfsmat
Leiðsagnarmat krefst þátttöku nemenda Sjálfsmat er mat á hvað lært er Ígrundun er mat á hvernig lært er Það þarf að þjálfa nemendur í að meta og ígrunda Það er hægt að meta og ígrunda á marga vegu Í bekkjarumræðum, undir 4 , með jafningja, með þar til gerðum spurningum, með því að nemandi fari fyrst yfir verkefni, með myndrænni kortlagningu (graphic organisers), með leiðabókum/dagbókum Ágúst 2006 ©Þóra Björk Jónsdóttir

32 Hvernig stend ég mig? Hvað get ég munað og hvernig fæ ég betur skilið?
Nota ég bestu námsaðferðir fyrir mig? Hvað þarf ég að gera til að bæta mig? Hvar er ég sterkur og hverjir eru veikleikar mínir? Hvernig veit ég hvort vinna mín sé góð? Hver eru markmiðin mín? Að hvaða atriðum þarf ég að einbeita mér við upprifjun? Hvað fær mig virkilega til að hugsa? Hvernig fer ég að því að ná árangri og taka framförum? Ágúst 2006 ©Þóra Björk Jónsdóttir

33 Sjálfsmat - ígrundun hugsað um hvað gerist við nám
Veldu eitt eða tvö atriði og bættu námsmarkmiðum þínum við í stað... Hvað fékk þig til að hugsa eða var erfitt við að læra...? Hvað hjálpaði þér (t.d. vinur, kennari, bók, þín eigin hugsun) þegar eitthvað varð erfitt við að læra...? Hvaða hjálp þarftu til að læra...? Með hvað ertu ánægðastur/ust eftir að hafa lært...? Hvað hefur þú lært sem er nýtt um...? Hvernig vildir þú breyta þessu verkefni fyrir aðra sem eru að læra...? Shirley Clarke 2005 Ágúst 2006 ©Þóra Björk Jónsdóttir

34 Sjálfsmat Jafningjamat-félagamat með marklista
Mitt nafn __________________    Félagi minn _______________: þarf að bæta OK frábærlega Takk fyrir samvinnuna  ... hélt sér að verki ... athugaði mína vinnu ... skiptist á þegar þarf ... var góður í samvinnu ... talaði í hálfum hljóðum Ágúst 2006 ©Þóra Björk Jónsdóttir

35 Frammistöðumat Frammistöðumat er safn matsaðferða sem meta getu nemanda við raunverulegar aðstæður svo sem lausn þrauta, verkefnavinnu, framkvæmd eða æfingu þar sem reynir á hvað hann getur. The Language of Learning: A Guide to Education Terms, by J. L. McBrien & R. S. Brandt, pp. 77-78, 1997, Alexandria, VA: Association for Supervision and Curriculum Development. Ingunnarskóli: Skilgreinigar: Ágúst 2006 ©Þóra Björk Jónsdóttir

36 Árangursríkt frammistöðumat
Metur ekki bara getu við lausn verkefnis, heldur tekur það einnig mið af námsmarkmiðum og árangursviðmiðum Á við í raunverulegum aðstæðum Notar viðmið til að meta kjarnann í frammistöðu nemandans með hliðsjón af vel skilgreindum markmiðum Felur í sér að verkefnin séu einstaklingsmiðuð og nemandi hafi eitthvert val við lausn þeirra Gefur tækifæri til ígrundunar og sjálfsmats nemenda Gefur nemendum tækifæri til að sýna raunverulegum áhorfendum verk sín Saskatchewan Professiolan Development Unit (Darling-Hammond, Aness, & Falk, 1995; McTighe & Wiggins, 1999) Ágúst 2006 ©Þóra Björk Jónsdóttir

37 Hvers vegna frammistöðumat?
Er öflugt leiðsagnarmat Svörun á frammistöðu fer fram jafnóðum Gefur tækifæri að afla gagna á margvíslegan hátt Athuganir, skráning, listar, sjálfs- og jafningjamat Gefur möguleika á samstarfi og samvinnu Nemendur taka þátt í að skipuleggja verkefni, setja viðmið og meta frammistöðu og afrakstur Saskatchewan Professiolan Development Unit AAC 2001 Ágúst 2006 ©Þóra Björk Jónsdóttir

38 Frammistöðumat sett fram með gátlista
Heilsar áhorfendum Er róleg/ur Kynnir efnið sem flytja á Nefnir höfund efnis Talar nógu hátt fyrir alla í salnum Ber skýrt fram textann Áherslur eru réttar Lítur upp af og til Þakkar fyrir sig Gengur rólega úr pontu Ágúst 2006 ©Þóra Björk Jónsdóttir

39 Frammistöðumat sett fram með matslista
Mat á frammistöðu nemenda 20 stig 15 stig 10 stig 5 stig Er vandvirkur. Leggur sig heilshugar fram. Leggur sig fram. Sýnir ekki sitt besta. Vinnur hirðuleysislega. Sýnir frumkvæði og sjálfstæði. Lætur sér detta eitthvað í hug sjálf/ur og framkvæmir það. Reynir stundum að framkvæma eigin hugmyndir. Þarf mikla stýringu. Gerir ekkert án stýringar. Kemur sér að verki, er vinnusamur. Fer að vinna strax, er að allan tímann. Vinnur vel þegar hann/hún er farin/n að vinna. Vinnur þokkalega. Er vanvirk/ur. Vinnur vel með öðrum. Truflar ekki. Leggur sig fram í hópastarfi þannig að allir fái notið sín. Vinnur vel með öðrum. Vinnur ágætlega með öðrum en truflar stundum. Leggur sig ekki fram í samvinnu. Gengur vel um. Fer vel með efni og áhöld Tekur saman eftir sig og aðra, passar upp á gögn og áhöld. Tekur saman eftir sig og passar upp á gögn og áhöld. Tekur saman eftir sjálfan sig. Tekur ekki saman. Ingunnarskóli Ágúst 2006 ©Þóra Björk Jónsdóttir

40 Matslisti eða viðmiðunarkvarði fyrir lesskilning 1 bekkur
Stig 1: Stig 2: Stig 3: Stig 4: Tenging (fyrri þekking) Tengir fyrri þekkingu ekki við textann     Getur rætt um innihald textans en getur ekki útskýrt eða tengt vel við fyrri þekkingu  Tengir eigin reynslu/þekkingu við það sem lesið er Notar eigin reynslu til að auka skilning og forspá um framhald. Tengir textann við annan texta og tengir textann við eigin reynslu . Notar uppbyggingu texta (grindina) til að spá fyrir um framhaldið. Spurningar Spyr einskis     Spyr spurninga um söguna, gæti ruglað saman spurningum/staðhæfingum Spyr viðeigandi spurninga um söguna, getur svarað spurningum  Spyr spurninga sem dýpka skilning, svarar spurningum auðveldlega, er farin(n) að gera sér grein fyrir mismunandi gerðum spurninga Sjá fyrir sér (skynjun myndmáls) Getur ekki lýst einföldum myndum sem koma í hugann úr textanum Getur lýst einföldum hughrifun eða myndum, aðallega tengdum texta eða myndum  Lýsir hugmyndum sem tengist beint við textann eða lýsing á myndum úr textanum. Lýsir eigin hugmyndum sem geta fæðst út frá textanum eða mynd og sýnir fram á það með fjölbreyttum hætti. Ákvörðun mikilvægis Ágiskun  Ónákvæmar tilraunir til að skilgreina einhver hugtök í textanum (t.d. persónur, söguþráð, meginhugsun, sögusvið)  Áttar sig á atriðum (í textanum), sem skipta meira máli (t.d. persónum, söguþræði, meginhugsun, sögusviði) Áttar sig á orðum, persónum og/eða atburðum, sem skipta máli varðandi heildarskilning, gerir tilraun til að útskýra söguna  Skilningsvakt – fylgjast með skilningi Engin meðvitund um þyngd textans Á í erfiðleikum með textann, en gerir ekki tilraun til að leita lausna. Gerir sér grein fyrir erfiðleikum og sýnir þörf á að leita lausna. Getur ekki skilgreint vandann. Skilgreinir vandamál og leitar lausna.  Draga ályktanir Reynir ekki að spá í eða draga ályktanir. Gerir tilraun til forspár eða ályktunar. Niðurstaða ónákvæm eða á sér ekki stoðir í textanum.  Kemst að niðurstöðu/dregur ályktanir og spáir fyrir í samræmi við textann eða bakgrunnsþekkingu. Kemst að niðurstöðu/dregur ályktanir og spáir fyrir með dæmum úr textanum. Draga saman efni -endursegja Endursegir ekki    Endursegir tilviljanakennt sum atriði textans, efnisatriði eru ekki endilega í samhengi. Endursegir flest aðalatriði í samhengi. Endursegir aðalatriði textans í rökréttu samhengi. Gæti bætt við meginefnið umfjöllun um boðskap eða nýtt bakgrunnsþekkingu.  Adapted from rubrics developed by Language Arts Committee, Walnut Creek School District, þýðing ÞBJ  Ágúst 2006 ©Þóra Björk Jónsdóttir

41 Matslisti Matsleiðbeiningar til að meta vinnu nemenda. Listi yfir hvaða viðmið liggja til grundvallar mati á afurð eða frammistöðu. Skýrir fyrir nemendum námsmarkmið og hvað merkir að ná þeim. Hjálpar nemendum að taka ákvarðanir með tilliti til að bæta gæði eigin vinnu. Ágúst 2006 ©Þóra Björk Jónsdóttir

42 Matslisti Nákvæm lýsing á námsmarkmiðum Grundvöllur mats og ígrundunar
Leiðsögn við skipulag náms Skorkort eða stöðumat Markbundnir, meta nemanda með tilliti til árangursviðmiða Ágúst 2006 ©Þóra Björk Jónsdóttir

43 Gátlisti, marklisti og matslisti
Sjá fyrri glærur Gátlisti  Tengir fyrri þekkingu Spyr Sér fyrir sér Ákvarðar mikilvægi Fylgist með skilningi Dregur ályktanir Endursegir Marklisti /    Tengir fyrri þekkingu    Spyr    Sér fyrir sér    Ákvarðar mikilvægi    Fylgist með skilningi    Dregur ályktanir    Endursegir    Ágúst 2006 ©Þóra Björk Jónsdóttir

44 Hvers vegna matslista? Sjónarhorn kennara
Hjálpar kennurum að skilgreina hvað er góður árangur og skipuleggja kennslu þannig að nemendur nái honum Tengir markmið og mat Hjálpar kennurum að vera nákvæmir, sanngjarnir og samkvæmir við fyrirgjöf Getur stuðlaða að samræmdum væntingum innan skóla, í árgangi eða deild Nýtist í matssamtali Saskatchewan Professiolan Development Unit Ágúst 2006 ©Þóra Björk Jónsdóttir

45 Hvers vegna matslista? Sjónarhorn nemenda
Skýrir væntingar kennara Tengir væntingar við vel skilgreinda gæðaframmistöðu Nýtist við að skipuleggja nám Styður sjálfsmat og jafningjamat Veitir markvissa svörun um hvernig eigi að bæta frammistöðu Nýtist við jafningjamat Curriculum corporation Saskatchewan Professiolan Development Unit Ágúst 2006 ©Þóra Björk Jónsdóttir

46 Þátttaka nemenda við gerð matslista
Taka þátt í eigin mati Tengjast náminu frá upphafi Skilja væntingar og viðmið um gæði Skilja bakgrunn mats og svörunar Curriculum corporation Ágúst 2006 ©Þóra Björk Jónsdóttir

47 Viðtal við nemanda í 9. bekk
Hvað og til hvers er námsmat? Einkunnir, tölur, það er til að bæta sig, bara til að læra, sjá á prófunum... Tekur þú þátt í námsmati? Nei aldrei, aldrei tekið þátt í sjálfsmati (að eigin sögn) Til hvers eru próf? Gá hvað við vitum mikið, (aðhald og þrýstingur) Hvað gerir kennari með niðurstöður prófa? Ekkert sem ég veit um En foreldrar? Sjá sjaldan prófin, þeir sjá bara einkunnir Ágúst 2006 ©Þóra Björk Jónsdóttir

48 Viðtal við nemanda í 9. bekk
Til hvers eru niðurstöður prófa fyrir nemendur? Þeir þurfa að læra undir þau og svo er hægt að sjá hvað þeir vita Hvernig leiðbeinir námsmat þér í námi? Ekkert Taka kennarar mið af niðurstöðum prófa Nei, við erum t.d. að læra um e-ð sem við vitum ekkert hvað er og skiljum ekkert en kennarinn heldur bara áfram og við höfum lítinn möguleika á að geta eitthvað á prófinu og svo sjáum við ekki prófið og vitum ekkert hvað við gerðum vitlaust Ágúst 2006 ©Þóra Björk Jónsdóttir

49 Viðtal við nemanda í 9. bekk
Hvort viltu tölur eða umsögn eða hvorutveggja? Fæ alltaf umsögn með einkunnum. Fínt að fá umsögn en umsögn hjálpar ekkert í náminu. Ef þarf að velja á milli einkunna og umsagna þá vil ég heldur einkunnir því þá veit ég hvað ég fékk á prófinu Hvort heldur þú að foreldrar þínir vilji ferkar tölur eða umsögn? Tölur Hvernig skilur þú tölurnar 8 og 5? 8 gengur mjög vel (en veit ekki hvernig ég á að bæta mig) þá veit ég helminginn af því sem ég á að vita (en veit ekki hvorn helminginn!) Aldrei fengið einkunn fyrir neitt annað en fögin, ekki fyrir félagslega þætti eða aðra þátttöku í skólastarfinu Ágúst 2006 ©Þóra Björk Jónsdóttir

50 Ágúst 2006 ©Þóra Björk Jónsdóttir


Download ppt "Einstaklingsmiðað námsmat"

Similar presentations


Ads by Google