Presentation is loading. Please wait.

Presentation is loading. Please wait.

Ingvar Sigurgeirsson Spjall við kennara í Salaskóla 28. nóvember 2018

Similar presentations


Presentation on theme: "Ingvar Sigurgeirsson Spjall við kennara í Salaskóla 28. nóvember 2018"— Presentation transcript:

1 Ingvar Sigurgeirsson Spjall við kennara í Salaskóla 28. nóvember 2018
Myndin er fengin úr námskeiðsgögnum Andreu Honigsfeld (sjá „Jú, sjáðu, maður getur fengið meiri hjálp?“ Teymiskennsla: kostir, hindranir og áskoranir Ingvar Sigurgeirsson Spjall við kennara í Salaskóla 28. nóvember 2018

2 Efnið Hvað er teymiskennsla og hvers vegna er hún á dagskrá?
Afbrigði, kostir og gallar Hvað segja rannsóknir – dæmi Reynslan af innleiðingu teymiskennslu hér á landi Verið er að innleiða teymiskennslu í fjölmörgum skólum víða um land Reynslan er í öllum meginatriðum jákvæð

3 Hvers vegna er þetta efni á dagskrá?
Rannsóknin Starfshættir í grunnskólum (2009‒2013) náði til 20 skóla Níu skólanna reyndust byggja verulega eða að hluta til á teymiskennslu – sex voru einyrkjaskólar og fimm voru hvort tveggja Teymiskennsluskólarnir reyndust standa framar í mörgum atriðum Fjölbreyttari kennsluhættir og námsmat Jákvæðari viðhorf um marga mikilvæga þætti

4 Hvað er teymiskennsla? Tveir eða fleiri kennarar eru samábyrgir fyrir einum árgangi, aldursblönduðum hópi, námsgrein eða námsgreinum. Kennarar undirbúa sig saman og kenna einnig að einhverju marki saman. Tveir eða fleiri kennarar leggja saman krafta sína, hæfileika, áhuga og bjargir og bera sameiginlega ábyrgð á kennslu í tilteknum nemendahópi (Main og Bryer, 2005).

5 Ótal afbrigði – mismunandi umfang
Kennarar í sama árgangi eða samliggjandi árgöngum vinna saman Nánast alltaf – eða stundum, t.d. hluta úr viku Faggreinakennarar vinna saman Bera saman ábyrgð á námsgrein í tilteknum hópum Leggja saman í þverfagleg viðfangsefni Í lengri eða skemmri tíma Í mis-umfangsmiklum verkefnum Sérkennarar (þroskaþjálfar) vinna með umsjónarkennurum (e. co-teaching)

6 Ensku hugtökin Team teaching Teaming Interdisciplinary team teaching
Collaborative teaching (eða cooperative teaching) Co-teaching

7 Rannsóknir á teymiskennslu
Teymiskennsla hefur verið rannsökuð í marga áratugi Á öllum skólastigum Víða um heim (Rannsóknum á árangursríkri teymisvinnu hefur einnig fleygt fram) Íslenskar rannsóknarniðurstöður

8 Dæmi um niðurstöður út Starfsháttarannsókninni:
Kennarar í teymiskennsluskólum ... eiga betri samskipti við nemendur telja samskipti nemenda betri telja starfsanda betri segja mun meiri áherslu lagða á samvinnu starfsfólks telja að mun betur gangi að innleiða nýbreytni taka mun meiri þátt í innleiðingu breytinga

9 Starfsþróun kennara er markviss hluti af skólastarfinu

10 Afstaða starfsfólks til fullyrðingarinnar Í mínum skóla gengur vel að innleiða breytingar í skólastarfinu

11 Rannsóknir meistaranema:
Svanhildur Ólafsdóttir (2009): Eigindleg rannsókn í þremur skólum (viðtöl og vettvangsathuganir) Þórhildur Helga Þorleifsdóttir (2013): Viðtalsrannsókn, rætt var við fjóra skólastjóra Fríða Rún Guðjónsdóttir (2014): Tilviksrannsókn í einum skóla (viðtöl og vettvangsathuganir) Sólveig Ásta Guðmundsdóttir (2014): Tilviksrannsókn í einum skóla (viðtöl og vettvangsathuganir) Björn Benedikt Benediktsson (2014): Viðtalsrannsókn (sjö kennarar í tveimur skólum) Kristín Margrét Gísladóttir (2015): Eigindleg rannsókn í þremur skólum (unglingastig) Anna Steinunn Friðriksdóttir (2015): Eigindleg rannsókn í þremur skólum (viðtöl og áhorf – áhersla á samstarf umsjónarkennara og sérkennara) Svanhildur kallaði ritgerð sína: Ef teymiskennsla er svarið hver er þá spurningin?

12 Anna Steinunn Friðriksdóttir (2015)
Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru að teymiskennsla styður við skólastarf í skóla án aðgreiningar með faglegri samvinnu teymisfélaga. Í slíkri samvinnu þarf að fara fram markviss og gagnrýnin samræða um aðferðir og nálganir í kennslu í samræmi við hugmyndafræði skóla án aðgreiningar. Teymisfélagar þurfa að líta á fjölbreytileika nemenda sem hið sanna viðmið og nýta kraft samvinnunnar til að leita markvissra og fjölbreyttra lausnaleiða þeim til handa með sveigjanleika að leiðarljósi. Samvinna kennara og sérkennara í teymi gefur aukna möguleika á fjölbreyttum aðferðum og nálgunum í kennslu í takti við styrkleika þeirra sem þjóna hagsmunum fjölbreyttra nemendahópa.

13 Hvað segja rannsóknir um kostina?
Verkaskipting – vinnuhagræðing ólíkir styrkleikar / menntun / reynsla kennara eða annarra starfsmanna nýtur sín betur Jafningjastuðningur Betri lausnir Agavandamál eru auðleystari Kennarar verða nemendum fyrirmyndir (um samvinnu) Við lærum hvert af öðru Hugmyndin um skólann sem lærdómssamfélag

14 Fleiri kostir Traustara námsmat
Nemendur (og foreldrar) hafa ákveðið val um kennara Ávinningur í tengslum við kennaramenntun Kandídatsárið Að vinna á gólfinu með öðrum fullorðnum veitir aðhald Auðveldara er að glíma við forföll Hvernig mætum við auknu álagi í starfi kennara? Yfirleitt vilja þeir sem starfa í teymum ekki fara til baka!

15 Mikilvægar forsendur Viðhorf kennara skipta sköpum
Það er hægt að læra að vinna í teymi Mikilvæg skilyrði Gagnkvæmt traust innan teymisins Hreinskilin samskipti Skipuleg vinnubrögð Stuðningur skólastjórnenda er afar þýðingarmikill Skipan í hópa Stundatöflur Hvatning

16 Hvað segja rannsóknir (og reynsla) um gallana - vandann
Tímaskorturinn Teymi ná ekki saman (samstarfsörðugleikar) Teymiskennsla er líklega ekki fyrir alla! Vandinn með hreinskilnina! Oft er vandi að taka ákvarðanir Þegar einhver eða einhverjir leggja minna af mörkum Aðstæðurnar – rýmið Stundatöflurnar Þegar nemandi finnur sig ekki í þessu skipulagi

17 Stærstu áskoranirnar Nemendur með alvarleg námsvandamál
Nemendur sem glíma við geðræn vandkvæði

18 Reynslan af nýjum innleiðingarverkefnum
Viðtöl við teymi í skólunum í Borgarbyggð, Húnaþingi og á Ísafirði Mörg dæmi um að vel gangi þegar: Tveir kennarar – sem ná vel saman – eru með hóp í sama rými Tveir eða fleiri (ólíkir) kennarar kenna stærðfræði saman (jafnvel í aldursblönduðum hópum) Samvinna þroskaþjálfa og kennara skilar góðum árangri

19 Að nýta styrkleika hvors/hvers annars
... ég sé að megninu til um agamálin ... hann er meira skapandi ... þetta er svona good cop ... bad cop ... við erum þó nógu líkir til að skilja hvorn annan vel ... ég get farið um víðan völl ... fengið óvæntar hugmyndir ... þegar ég fer of langt er hann jarðtenging ... (úr viðtali við miðstigsteymi í skóla í dreifbýli).

20 Að nýta styrkleika hvors/hvers annars
Ég held að við séum mjög ólíkar en það hefur gengið mjög vel hjá okkur ... erum líka mjög duglegar að styðja hver aðra þegar það er eitthvað erfitt ... og þegar nemendur eru erfiðir er hægt að segja „æ, getur þú tekið þennan ... hann er bara búinn með mig ... að geta róterað svoleiðis og líka bara ... mér finnst bara ógeðslega gott að vinna með þeim. Við bætum hver aðra upp (úr viðtali við unglingastigs- teymi í skóla í dreifbýli).

21 Að mæta álagi saman Þetta getur verið erfitt starf ... við getum verið með kvíðahnút á morgnana áður en við komum í vinnuna ... það geta verið erfiðar kringumstæður – en að vera að mæta í vinnuna og vera með vinnufélaga sem maður veit að styður mann og stendur með manni og maður hefur í þessum erfiðu málum. Það skiptir svo miklu máli (úr viðtali við kennarateymi á miðstigi).

22 Kostir við teymiskennslu
... þetta jafnar út dagsform ... við erum einhvern veginn svo ólíkir ... þegar hann á slæman dag, sefur illa ... þá sef ég oft sérstaklega vel ... og líður vel og svo öfugt ... (úr viðtali við miðstigsteymi í skóla í dreifbýli) ... ótrúlega margir ... nemendur hafa meira val um aðstoð ... við getum verið misjafnlega góð að útskýra námsefni ... okkar styrkur er mismunandi ... (úr viðtali við unglingastigsteymi í skóla í dreifbýli).

23 Kostir Þú getur alveg lent í því sem nemandi að vera með kennara í mörg ár sem þér líkar ekki við eða treystir ekki og þér líður ekki vel með honum. Hér gefur teymiskennslan möguleika (kennari í munnlegri skýrslu).

24 Sjónarhorn nemenda IS: En hvernig er að hafa svona tvo kennara?
Jú, sjáðu, maður getur fengið meiri hjálp Guðmundur útskýrir stærðfræðina miklu betur en það er betra að spyrja Gunnar um málfræðina Það er mjög gott – jú, sjáðu – til dæmis ef strákarnir eru óþægir getur annar kennarinn sinnt því, en hinn haldið áfram að kenna! Þeir eru svo miklu betri saman en sundur

25 Sjónarhorn nemenda IS: Hvernig er að hafa tvo stærðfræðikennara? Það er oft þægilegt að fá svona tvær ólíkar útskýringar ... þá færðu oft meiri dýpt. Sekkur betur ofan í efnið (nemandi í 9. bekk í viðtali).

26 Vandi Ákvarðanataka getur verið flókin því við þurfum að taka margar ákvarðanir saman. Þú þarft alltaf að bera undir annan ákvarðanir sem þarf að taka og það eru ekki allir alltaf sammála (viðtal við kennara í miðstigsteymi). Viðbragðssnjallir kennarar finna ráð

27 Fimmtán sekúndna spjallið
IS: Hvað gerið þið ef öðrum finnst hinn vera að taka vitlaust á málum? Við höfum ráð við því. Þá segir hinn: Má ég hitta þig hérna aðeins á bakvið ... og við eigum örstutt samráð ... tókum 15 sekúndna spjall ... veltum þessu upp eins einfalt og hægt er ... við berum virðingu fyrir hvor öðrum ... og treystum hvor öðrum ... málið er líka það að við spinnum ... og breytum stundum ... og þá nýtum við 15 sekúndna samtalið ... gerum þetta ... gerum þetta svona ... þetta er flott ... annar tekur af skarið ... og hinn ákveður að bakka það upp ... athugaðu að þetta er rosalega hnitmiðað ... (úr viðtali við miðstigsteymi í skóla í dreifbýli).

28 Frjórri kennsluhættir
Áhugaverðustu skólaþróunarverkefni sem IS hefur fylgst með eru flest afrakstur teymiskennslu Æfingaskólinn Grunnskólinn á Kópaskeri Hallormsstaðaskóli Framhaldsskólinn á Laugum Norðlingaskóli Bakkafjarðarskóli Aðalþing Brúarásskóli Hólabrekkuskóli Langholtsskóli

29 Og í lokin má aftur spyrja eins og Svanhildur Ólafsdóttir: Ef teymiskennsla er svarið hver er þá spurningin?


Download ppt "Ingvar Sigurgeirsson Spjall við kennara í Salaskóla 28. nóvember 2018"

Similar presentations


Ads by Google