Presentation is loading. Please wait.

Presentation is loading. Please wait.

Jóhanna Karlsdóttir lektor og Meyvant Þórólfsson lektor KHÍ Óhefðbundið námsmat Námskrárfræði og námsmat 4. misseri 2006.

Similar presentations


Presentation on theme: "Jóhanna Karlsdóttir lektor og Meyvant Þórólfsson lektor KHÍ Óhefðbundið námsmat Námskrárfræði og námsmat 4. misseri 2006."— Presentation transcript:

1 Jóhanna Karlsdóttir lektor og Meyvant Þórólfsson lektor KHÍ Óhefðbundið námsmat Námskrárfræði og námsmat 4. misseri 2006

2 Jóhanna Karlsdóttir lektor og Meyvant Þórólfsson lektor KHÍ Óhefðbundið námsmat Hvers vegna slíkt námsmat? Tilgangur? Hvað á/hvað er hægt að meta? Hvernig? Hvenær? Hve oft? Hvar? Hver/hverjir meta? Þáttur nemenda í námsmati

3 Aðalnámskrá grunnskóla Almennur hluti Námsmat: http://www.ismennt.is/vefir/namskra/g/alm ennt/almennur.htmlhttp://www.ismennt.is/vefir/namskra/g/alm ennt/almennur.html

4 Jóhanna Karlsdóttir lektor og Meyvant Þórólfsson lektor KHÍ

5 Verkefni í samfélagsfræði – Námsmat?

6 Hugtök og skilgreiningar Óhefðbundið námsmat (Alternative assessment) Rauntengt/Heildrænt námsmat (Authentic assessment) Frammistöðumat (Performance Assessment) Alhliða námsmat/samþætt (Holistic / intergrated) Hefðbundið námsmat (Traditional achievement assessment)

7 Matsaðferðir - matstæki Sýnismöppur, verkmöppur, námsmöppur (Portfolios) Skráning (Record keeping) Gátlistar (checlists), marklistar (Rating scales), óformleg skráning (anecdotal notes), viðmiðunartöflur (Rubrics)

8 Ýmsar gerðir námsmats fundir jafningja- mat sjálfsmat nemenda skipulegar athuganir dagbækur viðtöl regluleg skráning gátlistar viðhorfakannanir mat á frammistöðu við skil verkefna

9 Hvað er heildrænt námsmat? Úr grein Ingvars Sigurgeirssonar: Sem dæmi um skilgreiningu á heildrænu námsmati má nefna lýsingu Diane Hart (1994) í bókinni Authentic Assessment: A Handbook for Educators: Námsmat er heildrænt þegar það felur í sér að nemendur kljást við verkefni sem hafa raunverulega þýðingu og merkingu og eiga erindi. Slíkt námsmat ber keim af raunverulegum viðfangsefnum, en líkist ekki hefðbundnum prófum. Viðfangsefnin reyna á hugsun og að beitt sé víðtækri þekkingu. Lögð er rík áhersla á að gefa nemendum sem best til kynna hvað lagt er til grundvallar matinu þannig að þeim sé sem best ljóst að hverju er keppt. Í þessu felst að í heildrænu námsmati er áhersla lögð á að matið gefi til kynna að hverju sé mikilsvert að keppa í stað þess að meginatriðið sé að mæla alla á sömu stikunni.

10 Frammistöðumat og rauntengt mat (Performance Assessment) Felur í sér mat á hæfileikum sem ógerlegt er að meta með skriflegu prófi Dæmi: verkleg eðlisfræði, beiting tungumáls í samskiptum, lausn stórra samsettra verkefna í stærðfræði, flutningur tónlistar, leiklistar og svo frv. Útvíkkun á flokkunarkerfi Blooms: kunnátta, leikni, viðhorf, tilfinningar, samskiptafærni Mikilvægt að skilgreina “performance outcomes” Getur falið í sér “ferli” eða “afrakstur” eða hvort tveggja. MÞ 04

11 Frammistöðumati fylgja eftirfarandi kostir og gallar Kostir Getur metið flóknari niðurstöður og hæfileika en skrifleg próf gera Útvegar nákvæmt, endanlegt mat, meðal annars á líkamlegri og munnlegri tjáningu Gefur nemendum meiri hvatningu með því að staðfesta markmið og gerir lærdóm þýðingarmeiri í þeirra augum Gerir lærdóm að nærtækari og raunverulegri aðstæðum. Gallar Tímafrekt ferli sem kostar mikla vinnu Getur verið mjög huglægt, (óáreiðanlegt) Leggja verður áherslu á einstaklingsvinnu frekar en hópvinnu, hafa einstaklinginn í fyrirrúmi (Gronlund. 2003:139-143).

12 Í þýðingu Erlu Kristjánsdóttur á Armstrong er “Authentic assessment” nefnt “rauntengt mat”. Um rauntengt mat segir Armstrong :,,Besta myndin af hæfni nemenda í námsgreinum skólans fæst með því að fylgjast með nemendum leysa þrautir eða hanna hluti við raunsannar aðstæður.” (sjá nánar 10. kafla). Þar kemur einnig fram að athugun sé mikilvægasta forsenda rauntengds mats. Næst mikilvægust er heimildasöfnun þar sem,,skrá má frammistöðu nemenda á fjölbreyttan hátt” (bls 100-101).

13 Hvað þarf að hafa í huga við námsmat? Nota fjölbreyttar matsaðferðir Þekkja kosti og galla hverrar matsaðferðar Miða matið við námið og kennsluna Markmið eru forsenda námsmats

14

15 Hvaða þætti er hægt að meta? Athugið markmið námsgreina Virkni Áhugi Frágangur á verkefnum Hugkvæmni Fer eftir fyrirmælum Framfarir Samvinna Aflar upplýsinga Umgengni

16 Dæmi úr skólastofunni Samvinna Samþætting námsgreina Íslenska Samfélagsfræði Upplýsinga- og tæknimennt Listgreinar Lífsleikni

17 Mat á hópstarfi Virkniathuganir Matslisti til greiningar og mats í umræðum Viðhorfakönnun Sjálfsmat Mat kennara á flutningi og niðurstöðum Jafningjamat á flutningi og niðurstöðum

18 Hverjir meta? Lögð er áhersla á að sem flestir aðilar komi að matinu. Kennarar í mismunandi greinum vinni saman, kennarar hafi samráð þvert á árganga, skólastjórnendur séu hafðir með í ráðum, sérfræðingar séu kallaðir til eftir því sem unnt er og álits foreldra leitað (sjá t.d. Cole 1995:7).

19 Birting niðurstaðna Hvernig? tölur umsagnir viðtöl myndir myndbönd....

20 Þáttur nemenda í námsmati Úr grein Ingvars Sigurgeirssonar: Lögð er áhersla á að nemendur taki virkan þátt í matinu og taki þannig nokkra ábyrgð á eigin námi. Af þessu leiðir að áhersla er lögð á sjálfsmat og jafningjamat: –All performance assessments require students to structure the assessment task, apply information, construct responces, and, in many cases, explain the process by which they arrive at the answer.../ Allt frammistöðunámsmat (performance assessments) gerir þær kröfur til nemenda að þeir móti úrlausn sína sjálfir, noti upplýsingar og byggi sjálfir upp svörin, og útskýri, ef svo ber undir, hvernig þeir komust að niðurstöðu... (Khattri og Sweet 1996:5)

21 Gildi þess að nemendur taki þátt í námsmati Nemendur skilja betur til hvers er ætlast Sjálfsmat er þroskandi viðfangsefni Mat á öðrum krefst ábyrgrar afstöðu Mat nemenda veitir kennara ýmsar eftirsóknarverðar upplýsingar (Hafdís Guðjónsdóttir KHÍ)

22 Hvað eru verkmöppur? Möppurnar eru lýsing á leið sem hægt er að fara til að safna upplýsingum um nám nemenda sem hefðbundið námsmat nær ekki yfir. Það metur frammistöðu þeirra í því umhverfi sem námið fer fram í og er því rauntengt námsmat.

23 Hvað sýnir verkmappa? 1. Námsferli í ákveðinn tíma 2. Núverandi besta verk nemanda 3. Samanburð á besta verki nemanda við fyrri verk hans 4. Þróun og leikni í sjálfsmati 5. Sýnir hvað nemandinn hugsar þegar hann lærir 6. Stöðu einstaklings 7. Skýra sönnun til foreldra og annarra um að nám hafi farið fram 8. Samvinnu kennara og nemanda (Gronlund 2003:158)

24 Gildi verkmöppu Felst í fjölbreytni þeirra gagna sem safnað er til að sýna hvað og hvernig nám hefur farið fram. Það getur falið í sér fjölbreytt námsmat s.s. sjálfsmat, jafningjamat, kennaramat, foreldramat, skráningu á vinnuferli, skýrslur, gátlista, umsagnir, frásagnir, sjálfstæð viðfangsefni og fl.

25 Hvað ber að hafa í huga þegar notkun sýnismappa er ákveðin? 1. Hver er tilgangurinn? 2. Hvers konar verkefni á mappan að innihalda? 3. Leiðbeiningar um val og mat á verkum nemenda 4. Söfnun verkefna og notkun á möppunni 5. Mat á sýnismöppunni (Gronlund 2003:159)

26 Viðmið við mat á möppu Hefur tilgangi með notkun möppunnar verið náð? Sýnir mappan fjölbreytt dæmi um nám? Inniheldur mappan flókin verkefni sem sem nemendur geta leyst á raunverulegan hátt? Inniheldur hún sjálfsmat nemenda Gerir mappan nemendum fært að ákvarða námsferli og sýna hvar nemendur eru staddir? Sýnir mappan þátttöku nemenda og ábyrgð?

27 Frh. Eru leiðbeiningar um þátttöku nemenda? Inniheldur mappan námsmat byggt á skýrum viðmiðum? Kemur gagnvirkni kennslu og mats fram?

28 Hvað ber að hafa í huga þegar notkun sýnismappa er ákveðin? 1. Hver er tilgangurinn? 2. Hvers konar verkefni á mappan að innihalda? 3. Leiðbeiningar um val og mat á verkum nemenda 4. Söfnun verkefna og notkun á möppunni 5. Mat á sýnismöppunni (Gronlund 2003)

29 Sýnismappa - kostir 1. Yfirsýn yfir námsferil auðveld 2. Að beina sjónum að bestu verkum nemenda hefur jákvæð áhrif á nám 3. Að bera verk nemanda saman við fyrri verk hans hefur betri áhrif en að bera þau saman við verk annarra (Gronlund 2003)

30 Mat á sýnismöppum/verkmöppum nemenda Nafn nemanda __________________bekkur ____ Námsgrein _____________________önn ______ 4 3 2 1Skilningur á viðfangsefni/hugtökum 4 3 2 1Hvernig upplýsingar eru settar fram 4 3 2 1Hæfileiki til að færa rök 4 3 2 1Skrift 4 3 2 1Mælskulist 4 3 2 1Hæfileiki í að leysa þrautir/vandamál 4 3 2 1Frammistaða 4 3 2 1Samskiptahæfileiki 4 3 2 1Sjálfsmat 4 3 2 1Þátttaka og ábyrgð 4 3 2 1Sjálfstæð vinnubrögð

31 Matskvarði 4 = Framúrskarandi framfarir - 3 = Góðar framfarir - 2 = Viðunandi framfarir - 1 = óviðunandi (Gronlund. 2003:165)

32 Alhliða námsmat Vefur Guðrúnar Pétursdóttur um alhliða námsmat http://www.islandia.is/sigtun2/namsmatid/fr ammistmat.htmhttp://www.islandia.is/sigtun2/namsmatid/fr ammistmat.htm


Download ppt "Jóhanna Karlsdóttir lektor og Meyvant Þórólfsson lektor KHÍ Óhefðbundið námsmat Námskrárfræði og námsmat 4. misseri 2006."

Similar presentations


Ads by Google